Karellen

Vináttuverkefni Barnaheilla er forvarnarverkefni gegn einelti. Verkefnið er þýtt, staðfært og framleitt í samstarfið við Red Barnet – Save the Children og Mary Fonden í Danmörku. Þessu verkefni fylgir bangsinn Blær ásamt því að hvert og eitt barn á sinn eigin hjálparbangsa sem geymdur er í leikskólanum. Einnig fylgja með verkefninu spjöld með persónum og atburðum sem við vinnum með í hópavinnu ásamt verkefnum, sögum, nuddhefti og tónlist.

Vinátta byggir á nýjustu rannsóknum á einelti og á ákveðinni hugmyndafræði og gildum sem mikilvægt er að séu samofin öðru starfi þeirra skóla sem vinna með efnið. Auk þess byggir Vinátta á raunhæfum verkefnum fyrir nemendur, starfsfólk og foreldra. Þátttaka allra í þessu forvarnarverkefni er grundvöllur þess að vel takist til. Gert er ráð fyrir að þátttakendur tileinki sér þessi grunngildi við vinnu og í samskiptum innan skólasamfélagins. Hugmyndin endurspeglast í eftirtöldum fjórum gildum:

  • Umburðarlyndi: Að viðurkenna og skilja mikilvægi og gildi fjölbreytileikans og að koma fram við alla aðra af virðingu.
  • Virðing: Að viðurkenna og taka tillit til allra barnanna í hópnum, að vera öllum góður félagi og að virða margbreytileikann innan hópsins.
  • Umhyggja: Að sýna öllum börnum áhuga, samkennd, samlíðan og hjálpsemi. Að hafa skilning á stöðu annarra.
  • Hugrekki: Að þora að láta til sín heyra og geta sett sér mörk. Að vera hugrakkur og góður félagi sem bregst við óréttlæti.

Vinátta felst í því að fyrirbyggja einelti með að móta góðan skólabrag, eiga góð samskipti og hafa jákvæð viðhorf til allra í hópnum. Sérstök áhersla er lögð á að ná til þeirra barna og fullorðinna sem verða vitni að einelti og hvetja þau til að bregðast við því.

Heimasíða Barnaheilla

© 2016 - 2023 Karellen